10.5.2009 | 00:23
Hægur matur!!
Ég vil byrja á að fagna starfsemi samtakanna Beint frá Býli og þakka þessa umræðu.
Hreyfingin "Slow food" sem mætti þýða "Hægur matur", er mér mjög hugleikin núna. Hún átti upptök sín á Ítalíu og hefur verið í gangi í yfir 20 ár. Mér skilst að ein af grundvallarstefnum hreyfingarinnar sé sú að það sé flestra hagur að matur sé fengin að mestu úr héraði. Það stuðli m.a. að atvinnurekstri í héraðinu og dragi úr mengun sökum minni flutningskostnaðar. Þetta er að mínu mati heilbrigð og skynsöm stefna sem ætti að stuðla að gæðum og draga úr iðnvæðingu í matvælaframleiðslu.
Ég hef lengi litið á það sem forrétindi ljónheppinna einstaklinga að vera í þeirri aðstöðu að geta fengið grænmeti beint af plöntunni, kjöt beint undan hnífnum og fisk beint af önglinum. Því miður hef ég ekki notið þeirra forréttinda hingað til en kannski verður breyting á því í ljósi þessarar umræðu. Forréttindi eru þetta víst og vona ég að löggjafar- og reglugerðarfrumskógar verði ruddir og gerðir greiðfærari í þessum málum svo allir þjóðfélagsþegnar fái notið auðlinda Íslands!!
Áfram með smjörið stjórnvöld!!
|
Sífellt fleiri selja vörur sínar beint frá býli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:25 | Facebook



Athugasemdir
Það viðfangsefni sem þú ræðir um hér felur undir sjálfbæra þróun !
Alma Jenny Guðmundsdóttir, 10.5.2009 kl. 01:49
Þakkir fyrir ábendinguna.
Heiða Rafnsdóttir, 10.5.2009 kl. 09:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.